Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Austurlandi

location-svg

Búðareyri 1 á Reyðarfirði

11:45-12:45

Upplýsingar

location-svg

Búðareyri 1 á Reyðarfirði

11:45-12:45

3

nóv.

Þriðjudaginn 3. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við Austurbrú opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Austurlandi. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Austurbrúar við Búðareyri 1 á Reyðarfirði, kl. 11:45 og er opinn öllum.

Á fundinum verður meðal annars fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Eining það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum.

 Dagskrá

Staðan á Austurlandi

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabæjar og Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings

Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur

Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS

Mannvirkjaskrá

Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS

Skipulagsmál – helst á döfinni

Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS

Fundarstjóri verður Þuríður Lillý Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.

Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.