Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Norðurlandi eystra

location-svg

Húsnæði HMS á Akureyri, Hafnarstræti 107

12:00-13:00

Upplýsingar

location-svg

Húsnæði HMS á Akureyri, Hafnarstræti 107

12:00-13:00

9

nóv.

Mánudaginn 9. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við SSNE opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Norðurlandi eystra. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS við Hafnarstræti 107 á Akureyri, kl. 12 og er opinn öllum.

Á fundinum verður meðal annars fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Einnig það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum, eftirlitsmálum í mannvirkjagerð og tillögum að breytingum ásamt því að farið verður yfir starfsemi slökkviliða.

Dagskrá

Staðan á Akureyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar

Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur

Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS

Mannvirkjaskrá

Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS

Skipulagsmál – helst á döfinni

Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS

Breytt byggingareftirlit og einföldun regluverks

Jörundur Ragnar Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits mannvirkja hjá HMS

Starfsemi slökkviliða og stjórntæki sveitarfélaga

Helga Einarsdóttir, teymisstjóri brunavarna og slökkviliða hjá HMS

 

Fundarstjóri verður Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE.

Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.