Timbur vs. Steypa - Rannsóknir, framleiðsla, hönnun og uppbygging til framtíðar
Borgartún 21
13:00-15:30
Upplýsingar
Borgartún 21
13:00-15:30
30
apríl
HMS stendur fyrir viðburðinum Timbur vs Steypa í Nýsköpunarvikunni, í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur. Viðburðurinn fjallar um tvö helstu byggingarefni samtímans og framtíðarinnar – timbur og steypu – og hvernig þau mætast í samhengi rannsókna, sjálfbærni, framleiðslu, hönnunar og framkvæmdar.
Viðburðurinn er settur upp sem faglegur umræðuvettvangur þar sem sérfræðingar í timbri og steypu takast á við sömu viðfangsefni frá ólíkum sjónarhornum. Markmiðið er að varpa ljósi á styrkleika, áskoranir og tækifæri hvors efnis, og stuðla að upplýstri umræðu um framtíð mannvirkjagerðar.
Dagskráin samanstendur af fimm 30 mínútna liðum:
- Rannsóknir og sjálfbærni
- Framleiðsla
- Hönnun
- Framkvæmd
- Framtíðarsýn
Í hverjum lið flytja tveir fyrirlesarar erindi – annar með áherslu á timbur og hinn á steypu. Hvor fyrirlesari hefur 10 mínútna erindi, að því loknu fylgir 5–10 mínútna umræða og spurningar úr sal.
Viðburðurinn er ætlaður fagfólki í mannvirkjagerð, hönnun og skipulagi, sem og öllum sem hafa áhuga á sjálfbærri uppbyggingu og framtíð byggingarefna.
Hægt verður að fylgjast með viðburðinum í streymi eða mæta í Borgartún 21.
