Styrkjaumhverfi mannvirkjageirans

location-svg

Borgartún 21

13:00 - 15:30

Upplýsingar

location-svg

Borgartún 21

13:00 - 15:30

16

nóv.

Ertu með hugmynd að rannsóknar-, þróunar- eða nýsköpunarverkefni í mannvirkjageiranum og veltir fyrir þér hvaða styrktækifæri gætu hentað þér?

Burður og Rannís standa að sameiginlegum viðburði um styrkjaumhverfi mannvirkjageirans, þar sem markmiðið er að gera styrkjaumhverfið aðgengilegra og gefa þátttakendum betri yfirsýn yfir þau tækifæri sem standa til boða, bæði hér á landi og í Evrópu.

Farið verður yfir Ask mannvirkjarannsóknarsjóð, áherslur hans og umsóknarferli, auk þess sem kynnt verða verkefni sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum. Þá verður fjallað um fjölbreytt innlend og evrópsk styrktækifæri, meðal annars Horizon Europe, LIFE, Uppbyggingarsjóð EES, Eurostars, Tækniþróunarsjóð og Rannsóknasjóð.

Að kynningum loknum verður hægt að fá ráðgjöf, ræða verkefnahugmyndir og fá aðstoð við að greina hvaða styrktækifæri gætu hentað hverju verkefni.

Viðburðurinn er hugsaður bæði fyrir þau sem eru með verkefni eða hugmynd í farvatninu og þau sem vilja einfaldlega kynnast betur þeim möguleikum sem standa til boða. 

Að kynningum loknum verður hægt að fá ráðgjöf, ræða verkefnahugmyndir og fá aðstoð við að greina hvaða styrktækifæri gætu hentað hverju verkefni.

Viðburðurinn fer fram 16. nóvember kl. 13:00–15:30 í Borgartúni 21.

Skráning á viðburð

Dagskrá

13:00 Húsið opnar 

13:10–13:15 Yfirlit yfir styrkjaumhverfið í mannvirkjageiranum

13:15–13:25 Askur mannvirkjarannsóknarsjóður

13:25–13:35 Verkefnakynningar úr Aski

13:35–13:55 Kaffi

13:55–14:50 Rannís: Evrópustyrkir og innlendir styrkir

14:50–14:55 Grænar leiðir - Þjónusta við græna umsækjendur

14:55–15:00 Spurningar

15:00–15:30 Vinnustofa, ráðgjöf og leiðsögn fyrir umsækjendur