Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði

location-svg

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Borgartúni 21

10:00 - 12:00

Upplýsingar

location-svg

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Borgartúni 21

10:00 - 12:00

2

maí

Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði

location-svg

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Borgartúni 21

10:00 - 12:00

Upplýsingar

location-svg

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Borgartúni 21

10:00 - 12:00

2

maí

Askur – mannvirkjarannsóknasjóður og Rannís bjóða til fundar um stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði. Fundurinn er haldinn í húsakynnum HMS og er hægt að fylgjast með fundinum í streymi á slóðinni hms.is/streymi.

Á fundinum munu sérfræðingar hjá Rannís upplýsa um stærri styrktækifæri sem eru í farveginum í mannvirkjaiðnaði, sóknarstyrki og skattafrádrátt vegna rannsókna og nýsköpunar.  

Sérfræðingar í mannvirkjaiðnaði og styrkhafar hjá Aski með þekkingu á stærri styrkumsóknum veita innblástur og innsýn í heim stærri styrktækifæra.

Þorvaldur Birgir Arnarson hlaut árið 2023 stærsta LIFE styrk sem veittur hefur verið undir áætluninni Terraforming LIFE, hann vinnur sömuleiðis að styrkumsókn í mannvirkjaiðnaði hjá Horizon. Hann hlaut hæsta Asks styrkinn í síðustu úthlutun fyrir verkefnið „Stórþörungar sem staðgengilsefni fyrir byggingariðnað“.

Hrefna Vignisdóttir sem stýrir rannsóknateymi hjá SINTEF veitir innsýn í evrópustyrki sem hennar teymi hefur fengið undir samstarfsáætluninni DUT – driving urban transtion.

Björn Karlsson sérfræðingur hjá innviðaráðuneytinu segir reynslusögur úr rannsóknarumhverfinu.

Fundinum verður einnig streymt á hms.is/streymi

Fundarstjóri: Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri mannvirkja- og sjálfbærni hjá HMS.

Dagskrá

10:00   Askur og önnur styrktækifæri

Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs

10:05   Horizon Europe. Stórir ESB styrkir með fyrirfram ákveðnum áherslum: New European Bauhaus & Built4People.

Björg María Oddsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís

10.15   DUT: Uppbygging þéttbýla og hverfa til framtíðar – samstarf og styrkir

Katrín Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís

 10:25   DUT (Driving urban transiton) Evrópustyrkir

Hrefna Rún Vignisdóttir, leiðir rannsóknateymi hjá SINTEF

 10:40   Styrktækifæri – LIFE, EnergyBuilding LCA, BIM

Björg María Oddsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís

 10:50   Styrkhafi Asks og önnur styrktækifæri

Þorvaldur Birgir Arnarsson, Rækt ehf.

 11:05   Reynslusögur úr rannsóknarumhverfi

Björn Karlsson prófessor, sérfræðingur hjá Innviðaráðuneytinu

 11:20   Skattafrádráttur vegna nýsköpunar

Davíð Lúðvíksson, Rannís

 11:35 Umræður

Léttar veitingar og tengslamyndun í lok fundar og fulltrúar Rannís verða á staðnum til að veita frekari upplýsingar í fundarlok.

Skráning á viðburðinn

Skráning á viðburðinn