Námskeið: CE merkingar byggingavara

location-svg

Hús Fagfélaganna-Herðubreið, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík

09:00-12:00

Upplýsingar

location-svg

Hús Fagfélaganna-Herðubreið, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík

09:00-12:00

10

nóv.

HMS og IÐAN fræðslusetur standa í sameiningu fyrir námskeiði um CE-merkingar byggingarvara og þær kröfur sem gilda um markaðssetningu þeirra og notkun.

Á námskeiðinu verður farið yfir lög og reglugerðir um byggingarvörur, mikilvægi CE-merkinga og skyldur þeirra sem framleiða, selja eða nota byggingarvörur. Einnig verður fjallað um samhæfða staðla og hvernig meta skuli eiginleika byggingarvara þegar slíkir staðlar eru ekki fyrir hendi.

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu þátttakenda á gildandi reglum og gera þeim kleift að meta hvort byggingarvörur uppfylli viðeigandi kröfur.

Nánar um námskeiðið er á vef IÐUNNAR fræðsluseturs.

Skráning fer fram á vef IÐUNNAR