Hver kemur þér til bjargar?
Borgartún 21
10:00-12:00
Upplýsingar
Borgartún 21
10:00-12:00
20
maí
HMS kynnir Vegvísi að framtíðarskipulagi slökkviliða á opnum fundi miðvikudaginn 20. maí í Borgartúni 21. Fundurinn fer fram frá kl. 10 til 11:45.
Fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir og er þess óskað að fólk skrái sig með því að smella á hnappinn hér að neðan. Fundinum verður jafnframt streymt á vefsíðu HMS.
Skráning á viðburð
Slökkvilið landsins gegna lykilhlutverki í öryggi samfélagsins. Á sama tíma hefur samfélagið tekið miklum breytingum undanfarin ár, meðal annars vegna fjölgunar íbúa, breytts byggðamynsturs, flóknari mannvirki og aukinna krafna til viðbragðsgetu.
Þessar breytingar hafa áhrif á starfsemi slökkviliða og kalla á að framtíðarskipulag þeirra sé skoðað með heildstæðum hætti. Markmiðið er að tryggja jafnara öryggi íbúa landsins og skapa sveitarfélögum betri forsendur til að standa undir rekstri slökkviliða sem fyrsta viðbragðskerfi samfélagsins. Núverandi skipulag byggir á forsendum sem mótuðust við aðrar samfélagsaðstæður og því er tímabært að skoða hvernig megi styrkja kerfið til lengri tíma og laga það að breyttum þörfum.
Í Vegvísi að framtíðarskipulagi slökkviliða er lagt fram sameiginlegt leiðarljós fyrir næstu ár. Hann byggir á greiningum HMS á stöðu slökkviliða, þróun samfélagsins, reynslu slökkviliða og þeim áskorunum sem sveitarfélögin standa frammi fyrir við rekstur slökkviliða. Þar eru lagðar fram tillögur að næstu skrefum með það að markmiði að efla málaflokkinn, styrkja faglegt starf og skapa sameiginlegan grundvöll ríkis og sveitarfélaga fyrir stefnumótandi aðgerðir til næstu ára.
Dagskrá
Opnun fundar (10:00-10:05)
Hermann Jónasson, forstjóri HMS
Ávarp ráðherra (10:05-10:20)
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
Vegvísir að framtíðarskipulagi slökkviliða (10:20-11:00)
Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri brunavarna hjá HMS
Helga Einarsdóttir, teymisstjóri brunavarna og slökkviliða hjá HMS
Sjónarmið slökkviliða – reynsla, áskoranir og tækifæri (11:00-11:30)
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu
Birgir Finnsson, formaður Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi og slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu
Umræður og spurningar (11:30-11:45)
Húsið opnar kl. 09:30 og verður boðið upp á hressingu á meðan á fundi stendur.
