HMS á Verk og vit
Laugardalshöll
16:00
Upplýsingar
Laugardalshöll
16:00
19 - 22
mars
Stórsýningin Verk og vit verður haldin dagana 19.–22. mars 2026 í Laugardalshöll. Sýningin hefur fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur fagaðila í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og munu um 100 sýnendur taka þátt í ár. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardagana, en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana helgina 21.-22. mars.
Við bjóðum fagfólk, almenning og fjölskyldufólk velkomið í heimsókn á básinn okkar A31 til að eiga samtal við sérfræðinga okkar á sviðum húsnæðis, mannvirkja og skipulagssmála.