Hluti 5 Brunavarnir: Kynningarfundur vegna breytinga á byggingarreglugerð
Borgartún 21
14:00
Upplýsingar
Borgartún 21
14:00
25
ágúst
Þriðjudaginn 25. ágúst nk. verðar fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð er varða brunavarnir kynntar. Fundurinn verður haldinn í sal HMS að Borgartúni 21, kl. 14:00. En einnig verður hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi
Skráning á viðburð
HMS boðar til kynningarfundar um breytingu á byggingarreglugerð er varðar hluta 5 um brunavarnir. Á fundinum verða tillögur að breyttum hluta um brunavarnir kynntar og í framhaldinu verður boðið upp á opið samtal þar sem hagaðilum gefst tækifæri að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri.
Fundurinn er liður í endurskoðun og einföldun byggingarreglugerðar. Markmið endurskoðunarinnar er að gera reglugerðina einfaldari og skýrari með aukinni áherslu á virknimiðaðar kröfur, samræmda uppbyggingu og meira svigrúm til fjölbreyttra lausna.
Hluti 5 um Brunavarnir tekur efnislega til núgildandi 9. hluta byggingarreglugerðar og fjallar um eftirfarandi atriði:
- Almennt ákvæði
- Öryggisbúnaður vegna brunavarna í mannvirkjum
- Rýming við eldsvoða
- Varnir gegn útbreiðslu elds og reyks
- Aðstaða og búnaður vegna aðkomu slökkviliðs
- Burðarvirki við bruna
Drög að 5. hluta byggingarreglugerðarinnar um Brunavarnir ásamt greinargerð um breytingar verða birtar hér fyrir fundinn, einnig verður hægt að skila athugasemdum rafrænt.
Skráðu þig á póstlista
Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með framvindu verkefnisins geturðu skráð þig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:
- komandi kynningar- og samráðsfundi,
- birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
- annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.
Skráning á póstlistann
Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.
