Hluti 3 Innivist: Kynningarfundur vegna breytinga á byggingarreglugerð

location-svg

Borgartún 21

14:00

Upplýsingar

location-svg

Borgartún 21

14:00

2

júlí

Fimmtudaginn 2. júlí nk. verða kynntar fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð er varða innivist. Fundurinn verður haldinn í sal HMS að Borgartúni 21, kl. 14:00. En einnig verður hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi

Skrá mig á viðburð

Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun boðar til kynningarfundar um breytingu á byggingarreglugerð er varðar hluta 3 um innivist.  Á fundinum verða tillögur að breyttum hluta um innivist kynntar og í framhaldinu verður boðið upp á opið samtal þar sem hagaðilum gefst tækifæri að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri.

Fundurinn er liður í endurskoðun og einföldun byggingarreglugerðar. Nánar má lesa um verkefnið í fréttinni HMS leggur til einfaldari og nútímalegri byggingarreglugerð. Markmið endurskoðunarinnar er að gera reglugerðina einfaldari og skýrari með aukinni áherslu á virknimiðaðar kröfur, samræmda uppbyggingu og meira svigrúm til fjölbreyttra lausna.

 

Hluti 3 um innivist tekur efnislega til núgildandi 10. og 11. hluta byggingarreglugerðar og fjallar um eftirfarandi atriði:

  • Loftgæði og loftræsing
  • Ljósvist
  • Raki
  • Hljóðvist

Drög að 3. hluta byggingarreglugerðarinnar um Innivist ásamt greinargerð um breytingar verða birtar hér fyrir fundinn, einnig verður hægt að skila athugasemdum rafrænt.

 

Skráðu þig á póstlista

Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með framvindu verkefnisins geturðu skráð þig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:

  • komandi kynningar- og samráðsfundi,
  • birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
  • annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.

 

Skráning á póstlistann

Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.