Fræðslufundur Staðlaráðs Íslands
Borgartún 21
12:00-13:00
Upplýsingar
Borgartún 21
12:00-13:00
7
maí
HMS ásamt Staðlaráði Íslands boða til opins fræðslufundar fimmtudaginn 7. maí í Borgartúni 21 klukkan 12:00.
Á fundinum verður sjónum beint að tveimur umfangsmiklum innviðaverkefnum sem nú eru í framkvæmd á Íslandi. Fjallað verður annars vegar um nýjan Hringveg um Ölfusá og hins vegar uppbyggingu nýs Landspítala. Sérfræðingar verkefnanna munu fara yfir hönnun, framkvæmd og helstu áskoranir við uppbygginguna.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi.
Dagskrá fræðslufundar:
Vegagerðin – Hringvegur um Ölfusá , hönnun og framkvæmd
Sérfræðingur frá Vegagerðinni mun fjalla um hönnun og framkævmdina á nýrri 330 metra langri stagbrú á Ölfusá. Innifalið í verkinu er einnig vegagerð nýs Hringvegar á um 4 km kafla ásamt tengivegum, undirgöngum, mislægum vegamótum austan Selfoss auk lagnavinnu við stofnlagnir hitaveitu, kaldavatns, rafmagns og fjarskipta. Samningur um alverkið var undirritaður í nóvember 2024.
Nýr Landspítali – framkvæmdaverkefni NLSH
Ólafur Birgisson framkvæmdastjóri hjá NSLH mun fjalla um stærsta byggingarverkefni í heilbrigðisþjónustu Íslands. Þar á meðal er bygging á nýjum meðferðarkjarna (sjúkrahúsi), sjúkrahótel og rannsóknahús.
Að loknum erindum verður boðið upp á fyrirspurnir og umræðu.
