Hluti 6 Burðarþol og stöðugleiki: Kynningarfundur vegna breytinga á byggingarreglugerð
14:00
Upplýsingar
14:00
10
sep.
Fimmtudaginn 10. september nk. verðar fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð er varða burðarþol og stöðugleika kynntar. Fundurinn verður haldinn í sal HMS að Borgartúni 21, kl. 14:00. En einnig verður hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi
Skráning á viðburð
HMS boðar til kynningarfundar um breytingu á byggingarreglugerð er varðar hluta 6 um burðarþol og stöðugleika.
Á fundinum verða tillögur að breyttum hluta um burðarþol og stöðugleika kynntar og í framhaldinu verður boðið upp á opið samtal þar sem hagaðilum gefst tækifæri að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri.
Fundurinn er liður í endurskoðun og einföldun byggingarreglugerðar. Markmið endurskoðunarinnar er að gera reglugerðina einfaldari og skýrari með aukinni áherslu á virknimiðaðar kröfur, samræmda uppbyggingu og meira svigrúm til fjölbreyttra lausna.
Hluti 6 um burðarþol og stöðugleika tekur efnislega til 8. hluta gildandi reglugerðar að byggingavörum undanskildum.
Drög að 6. hluta byggingarreglugerðarinnar um burðarþol og stöðugleika ásamt greinargerð um breytingar verða birtar hér fyrir fundinn, einnig verður hægt að skila athugasemdum rafrænt.
Skráðu þig á póstlista
Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með framvindu verkefnisins geturðu skráð þig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:
- komandi kynningar- og samráðsfundi,
- birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
- annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.
Skráning á póstlistann
Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.
