Einföldun og nútímavæðing byggingarreglugerðar
Borgartún 21
14:00 - 15:00
Upplýsingar
Borgartún 21
14:00 - 15:00
25
júní
Fimmtudaginn 25. júní verða kynntar fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu HMS í Borgartúni 21 kl. 14:00, en einnig er hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi.
Skráning á viðburð
Breytingarnar eru liður í heildstæðu átaki stjórnvalda til að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar, stuðla að skilvirkari stjórnsýslu og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis og annarra mannvirkja. Jafnframt er lögð áhersla á að viðhalda öryggi og gæðum mannvirkja með markvissari og áhættumiðaðri nálgun í byggingareftirliti.
Markmið breytinganna eru að:
- auka samkeppnishæfni mannvirkjaiðnaðarins með því að fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur og innleiða áhættumiðað byggingareftirlit
- styrkja neytendavernd og fækka byggingargöllum í íslenskum mannvirkjum
- lækka byggingarkostnað og stuðla að aukinni nýsköpun í mannvirkjagerð
Félags- og húsnæðismálaráðherra mun ávarpa fundinn. Að því loknu munu sérfræðingar HMS fara yfir helstu breytingarnar.
