Skipulag
Skipulag
Almenningur og hagsmunaaðilar
Almenningur og hagsmunaaðilar
Eitt markmiða skipulagslaga er að tryggja samráð við almenning við gerð skipulags. Skipulagsákvarðanir varða hagsmuni almennings og geta haft í för með sér miklar breytingar á umhverfinu. Því er mikilvægt að sjónarmið almennings komi fram við gerð skipulags.
Skipulagslög tryggja að vinna að skipulagi sé kynnt opinberlega og að almenningi sé gefið tækifæri til að fylgjast með og taka þátt í mótun tillagna um fyrirkomulag byggðar og mótun umhverfis.
Samráð við almenning við gerð skipulags fer eftir viðfangsefni og umfangi vinnunnar hverju sinni.
Hvernig get ég haft áhrif?
Á Skipulagsgátt, samráðsgátt um skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum og framkvæmdaleyfi, má finna upplýsingar um mál í vinnslu, gera athugasemdir við mál á kynningartíma og nálgast endanleg gögn og afgreiðslur.
Kynning og samráð við gerð skipulags
Kæruheimild
Þeir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda skipulagsákvörðun geta kært afgreiðslu skipulags til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Það á við sem dæmi landeigendur, nágranna og samtök sem uppfylla tiltekin skilyrði.
Kæranlegar ákvarðanir:
- Samþykkt deiliskipulags. Kærufrestur er einn mánuður.
- Veiting framkvæmdaleyfis. Kærufrestur er einn mánuður.
- Aðalskipulag er ekki hægt að kæra.
Nánari upplýsingar er að finna á vef úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
