22. apríl 2026

Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,51% í mars 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala leiguverðs mældist 127,9 stig í mars og hækkaði um 1,51% á milli mánaða 
  • Vísitalan hækkaði um 6,32 prósent milli marsmánaða 2025 og 2026, á sama tíma og verðbólga mældist 5,4 prósent 
  • Leiguverð hækkaði um 0,87 prósent að raunvirði undanfarið ár 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 127,9 stig í mars og hækkaði um 1,51 prósent á milli mánaða. Vísitalan hefur hækkað um 6,32 prósent á undanförnum 12 mánuðum, á sama tíma og verðbólga mældist 5,4 prósent og íbúðaverð hækkaði um 2,61 prósent. Leiguverð hefur því hækkað lítillega að raunvirði undanfarna 12 mánuði, eða um 0,87 prósent, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs hækkaði annan mánuðinn í röð en markaðsleiga hækkaði að nafnvirði um 5,18 prósent í febrúar og nafnverðshækkun nam 4,97 prósentum á ársgrundvelli í janúar. Til að tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs haldi áfram að hækka í apríl þarf vísitalan að hækka meira en hún gerði milli mars 2025 og apríl 2025 þegar hún hækkaði um 1,33 prósent milli mánaða.

Hægt er að nálgast mælaborð fyrir vísitölur HMS með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo marsgildi hennar tekur mið af leigusamningum í febrúar og mars.

Leigu­verð­sjá sýn­ir einnig hækk­un á milli mán­aða í mars

Hægt er að nálgast upplýsingar um leigusamninga í leiguverðsjá HMS, þar sem leigusalar og leigjendur geta nálgast upplýsingar um markaðsverð íbúða og fjölda leigusamninga í hverjum mánuði.

Fermetraverð markaðsleigu á höfuðborgarsvæðinu miðað við 60-90 fermetra leiguhúsnæði í herbergjaflokkum tveggja til fjögurra herbergja var að meðaltali 3.962 kr. í janúar og febrúar og 4.028 kr. í febrúar og mars. Fermetraverð markaðsleigu á ofangreindum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði þar með um 1,67 prósent milli mánaða í mars.

Hafa ber þó í huga að leiguverðsjáin sýnir ekki leiguverð einstakra samninga, einungis meðaltöl. Jafnframt miðast leiguverðsjá við upphafsdag leigusamninga en vísitalan er reiknuð miðað við verðdag þeirra.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS