21. júlí 2026

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða í júní 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðaverð hækkaði lítillega á milli mánaða í júní eftir að hafa lækkað í maí og staðið í stað í apríl
  • Hækkun vísitölunnar er drifin áfram af sérbýlisíbúðum um land allt
  • Íbúðaverð hefur lækkað að raunvirði á ársgrundvelli í ellefu mánuði

Vísitala íbúðaverðs mældist 113,4 stig í júní og hækkaði um 0,09% á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,44% á milli mánaða í maí og staðið í stað í apríl. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,80 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent. Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.

Verðþróun í júní var ólík eftir landssvæðum og tegundum íbúða líkt og sjá má í töflunni hér fyrir neðan. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði til að mynda um 0,09% á milli mánaða á meðan það hækkaði um 0,43% á landsbyggðinni. Þá hækkaði verð á sérbýlisíbúðum um rúm 1,20% á milli mánaða á bæði höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni á meðan verð á fjölbýlisíbúðum lækkaði um 1,17% til 1,45%.  

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir júní 2026

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð113,40,09%1,80%
Sérbýli á hbs.114,11,24%1,51%
Sérbýli á landsbyggð118,41,20%4,23%
Fjölbýli á hbs.110,2-1,17%0,92%
Fjölbýli á landsbyggð115,8-1,45%2,12%

Næst­minnsta 12 mán­aða hækk­un íbúða­verðs frá 2011

Heilt á litið hefur hægt verulega á verðhækkunum á íbúðamarkaði undanfarin misseri og tólf mánaða taktur vísitölunnar hélt áfram að lækka á milli mánaða, bæði að nafnvirði og að raunvirði. Líkt og áður sagði hefur vísitala íbúðaverðs  hækkað um 1,80% á síðastliðnum tólf mánuðum á sama tíma og verðbólga mældist 5,2%. Íbúðaverð hefur því lækkað um 3,25% að raunvirði síðastliðið ár.

Ef frá er talinn júlímánuður árið 2023 hefur vísitala íbúðaverðs ekki hækkað minna á ársgrundvelli síðan í byrjun árs 2011. Á þeim tíma var fasteignamarkaðurinn að jafna sig eftir efnahagshrunið árið 2008 og árstaktur íbúðaverðs mældist neikvæður í rúm tvö ár samfleytt. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan mældist tólf mánaða breyting vísitölunnar neikvæð um 10% um nærri því ársskeið frá 2009 til 2010.

Sé litið til raunverðsþróunar á ársgrundvelli hefur íbúðaverð nú lækkað í ellefu mánuði í röð. Íbúðaverð lækkaði þó meira að raunvirði á ársgrundvelli um nokkurt skeið frá vormánuðum ársins 2023 fram undir byrjun árs 2024, eða um allt að 6%. Á þeim tíma voru miklar vaxtahækkanir farnar að hægja verulega á verðhækkunum á markaðnum áður en Grindavíkuráhrifin tóku við. Þar áður hafði íbúðaverð þó ekki lækkað meira og lengur að raunvirði síðan á eftirhrunsárunum þegar lækkunarhrinan varði í rúm þrjú ár og íbúðaverð lækkaði um allt að 20% að raunvirði á einu ári.

Mæla­borð fyr­ir vísi­töl­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS