27. nóvember 2026
Útgáfa á nýju sniðmáti og leiðbeiningum fyrir gerð matsskyldufyrirspurna
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Sniðmát fyrir gerð matsskyldufyrirspurna er nú aðgengilegt á vef HMS
- Einnig eru komnar út leiðbeiningar um efni matsskyldufyrirspurna
- Leiðbeiningunum er ætlað að auðvelda framkvæmdaraðilum að útbúa matsskyldufyrirspurn
Gefið hefur verið út sniðmát fyrir matsskyldufyrirspurnir sem ætlað er að auðvelda framkvæmdaraðilum að útbúa matsskyldufyrirspurnir, þ.e. tilkynningu um framkvæmd til ákvörðunar um matsskyldu.
Samhliða sniðmátinu hafa verið gefnar út leiðbeiningar um efni matsskyldufyrirspurnar. Leiðbeiningarnar taka mið af sniðmátinu og er ætlað að auðvelda framkvæmdaraðilum að útbúa matsskyldufyrirspurn á grundvelli sniðmátsins. Leiðbeiningarnar nýtast þó jafnframt þeim sem notast ekki við sniðmátið.
Sniðmát fyrir matsskyldufyrirspurnir má sjá hér
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




