13. júlí 2026
16. júlí 2026
Útbreiðsla sameignarfyrirkomulags er enn takmörkuð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Þinglýstir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru 780 í maí
- Sameignarsjóðir eiga hlut í 44 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
- Meðalfermetraverð íbúðanna hefur verið á pari við söluverð sambærilegra íbúða undanfarið ár
Enn hafa fáar íbúðir selst með sameignarfyrirkomulagi, en fermetraverð þeirra íbúða sem hafa selst með því fyrirkomulagi hefur ekki verið frábrugðið öðrum sambærilegum íbúðum. Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir júlímánuð sem kemur út í næstu viku.
Kaupsamningar í maí voru færri en undanfarin ár
Þinglýstir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru 780 í maí síðastliðnum. Það eru færri kaupsamningar en í sama mánuði undanfarin tíu ár, ef frá er talið árið 2023 þegar 731 kaupsamningi var þinglýst.
Tæplega 62% þinglýstra kaupsamninga í maímánuði vörðuðu íbúðir sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu sem er í samræmi við dreifingu íbúðastokksins eftir landsvæðum. Þinglýstum kaupsamningum fækkaði þó um 5% á milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma og þeim fjölgaði um 17% í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og um 12% annars staðar á landsbyggðinni.
Útbreiðsla sameignarfyrirkomulags er enn takmörkuð
Tíu mánuðir eru nú liðnir frá því að svokallað sameignarfyrirkomulag var fyrst kynnt til sögunnar hér á landi. Þar bjóðast fjárfestingasjóðir á vegum byggingarfyrirtækja til að taka þátt í kaupum einstaklinga á nýjum íbúðum úr eigin smiðju byggingaraðilanna. Útbreiðsla fyrirkomulagsins er enn takmörkuð en í upphafi júlímánaðar áttu fimm fjárfestingasjóðir á vegum byggingaverktaka hlut í 44 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu.
Flestar íbúðirnar eru staðsettar í Garðabæ (43%) og í Hafnarfirði (41%) auk nokkurra íbúða í Reykjavík (16%). Einungis nýjar íbúðir standa kaupendum til boða með sameignarfyrirkomulaginu, en meirihluti íbúðanna sem fjárfestingarsjóðirnir eiga hlut í er með byggingarár 2025. Aðrar íbúðir eru með byggingarár 2023, 2024 og 2026.
Meirihluti íbúðanna eru á bilinu 70 til 99 fermetrar að stærð en fimmtungur þeirra er á bilinu 100 til 129 fermetrar, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan. Lítill hluti íbúðanna er minni en 70 fermetrar að stærð og enn færri eru 130 fermetrar eða stærri.
Kaupverð sameignaríbúða á pari við aðrar sambærilegar íbúðir
Kaupverð íbúðanna sem sameignarsjóðirnir eiga hlut í hefur verið á bilinu 59 til 119 milljónir króna, en meðalkaupverðið hefur verið um 79 milljónir króna. Fermetraverðið hefur verið allt frá 680 þúsund krónum upp í tæplega 1.100 þúsund krónur, en helmingur íbúðanna voru keyptar á fermetraverði á bilinu 900 til 999 þúsund krónur, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan. Um 28% íbúðanna voru keyptar á fermetraverði á bilinu 700 til 899 þúsund krónur en einungis lítill hluti á fermetraverði undir 700 þúsund krónum eða yfir milljón krónum. Miðgildi fermetraverðs er rúmlega 920 þúsund krónur.
Heilt á litið hefur meðalfermetraverð þeirra íbúða sem sameignarsjóðirnir eiga hlut í verið á pari við meðalfermetraverð í kaupsamningum um sambærilegar íbúðir síðastliðið ár, þ.e. fjölbýlisíbúðir með byggingarár frá 2023 til 2026 í Reykjavík, Hafnarfirði og Garðabæ. Í kaupverðsjá HMS má nálgast upplýsingar um kaupsamninga úr kaupskrá auk samantekinna upplýsinga um fjölda kaupsamninga og miðgildi fermetraverðs eftir mánuðum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




