12. október 2026
14. október 2026
Umhverfismat á þriðja ársfjórðungi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Á þriðja ársfjórðungi voru gefin út 18 álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana
- Fiskeldi var algengasti flokkur framkvæmdaáforma, þar á eftir komu vatnsaflsvirkjanir
- Flest áform voru á Suðurlandi og þar á eftir á Vestfjörðum
Á þriðja ársfjórðungi (júlí, ágúst, september) voru gefin út 18 álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Þar af voru tíu mál sem sneru að ákvörðun um matsskyldu, þrjú álit um matsáætlun og fimm álit um umhverfismat.
Tegundir framkvæmdaáforma
Fiskeldi var algengasti flokkurinn af tegund framkvæmdar. Þar af voru þrjú mál sem varða landeldi og tvö sjókvíaleldi. Þrjú mál voru í flokknum vatnsaflsvirkjanir.
Áform eftir landshlutum
Þegar landshlutar eru skoðaðir má sjá að flest mál eru á Suðurlandi og þar á eftir á Vestfjörðum.
Álit og ákvarðanir sem voru gefin út í september mánuði
Hvalárlína 1 og Miðdalslína 1, viðbót við matsáætlun – álit um matsáætlun
Landsnet hefur ákveðið að bæta við tveimur valkostum inn í umhverfismat Hvalárlínu 1 og Miðdalslínu 1. Annars vegar verður tekinn til skoðunar sá kostur að Hvalárlína 1 geti verið loftlína alla leið og hins vegar nýr kostur um legu Miðdalslínu 1.
Tunguvirkjun í Keldnalæk – ákvörðun um matsskyldu
Afl og orka ehf. áformar að reisa allt að 3 MW vatnsaflsvirkjun í Keldnalæk í Rangárþingi ytra sem virkjar 8 m3/s rennsli með 40 m fallhæð og er árleg raforkuframleiðsla áætluð um 19 GWst. Framkvæmdin felur m.a. í sér byggingu stíflu, stöðvarhúss, lagningu 3,5 km langs vegar og 1,4 km langrar aðrennslispípu. Gert er ráð fyrir 3,5 ha inntakslóni neðst í Keldnalæk og verður vatni lækjarins veitt í Eystri-Rangá um 1,5 km neðan við núverandi ármót Keldnalækjar og Eystri-Rangár
Skipting Eyrarhlíðar í Dýrafirði í tvö eldissvæði – ákvörðun um matsskyldu
Arctic Sea Farm áformar að skipta eldissvæðinu Eyrarhlíð í Dýrafirði í tvö eldissvæði, þ.e. Eyrarhlíð I og Eyrarhlíð II. Svæðið er í dag eitt eldissvæði en er þó rekið sem tvær aðskildar eldiseiningar. Með breytingunni fær hvor eining sinn eigin hvíldartíma, en bæði svæðin yrðu þó ávallt hvíld samtímis í minnst 30 daga.
Aukin efnistaka úr Kiðafellsnámu í Hvalfirði – ákvörðun um matsskyldu
Um er að ræða breytingu á gildandi leyfi til efnistöku af hafsbotni í Kiðafellsnámu í Hvalfirði. Björgun-Sement (áður Björgun ehf.) hyggst sækja um leyfi fyrir allt að 5.000.000 m³ efnistöku í stað 1.667.000 m³ af lausum jarðefnum sem núgildandi leyfi kveður á um.
Aukin framleiðslugeta Silfurstjörnunnar á Núpsmýri – ákvörðun um matsskyldu
Fiskeldi hefur verið rekið í eldisstöðinni Núpsmýri í áratugi. Fyrirhuguð breyting felur í sér aukningu á heimiluðu framleiðslumagni úr 3000 t ári í 3800 t innan núverandi mannvirkja.
Sjá má öll mál frá júlí mánuði hér og öll mál frá ágúst mánuði hér
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS






