17. apríl 2026
20. apríl 2026
Staða almenna íbúðakerfisins í apríl 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Rúmlega 4.700 íbúðir hafa fengið stofnframlög frá 2016
- Um 3.000 íbúðir sem hlotið hafa stofnframlög eru þegar komnar í notkun um allt land
- Þrátt fyrir mikla uppbyggingu hafa biðlistar eftir úrræðum lengst
Stofnframlög frá ríki og sveitarfélögum hafa fjármagnað uppbyggingu rúmlega 4.000 leiguíbúða utan markaðsleigu um allt land á síðustu 10 árum, en um 3.000 þeirra eru þegar komnar í notkun. Biðlistar eftir slíkum íbúðum hafa hins vegar lengst á sama tíma, þar sem þörf á leiguíbúðum utan markaðsleigu hefur aukist.
Biðlistar hafa lengst þrátt fyrir mikla uppbyggingu
Frá því að stofnframlagakerfinu var komið á fót á seinni hluta árs 2016 hefur verið úthlutað stofnframlögum til byggingar eða kaupa á rúmlega 4.700 íbúðum víðs vegar um landið. Af þeim hafa um það bil 3.000 íbúðir verið teknar í notkun og hafa þær stuðlað að auknu húsnæðisöryggi fjölskyldna um allt land.
Þrátt fyrir þessa uppbyggingu er þörfin áfram mikil og hefur aukist á undanförnum árum. Samkvæmt húsnæðisáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2025 voru tæplega 4.000 fjölskyldur á biðlista eftir leiguíbúð fyrir tekju- og eignalægri heimili, samanborið við um 2.000 fjölskyldur árið 2022. Það bendir til þess að uppbygging almennra íbúða hafi ekki haldið í við vaxandi þörf.
Á mynd hér að neðan má sjá hvernig almennar íbúðir sem teknar hafa verið í notkun dreifast um landið. Auk þeirra eru nærri 1.000 íbúðir í undirbúningi eða uppbyggingu á ýmsum framkvæmdastigum, en þær koma ekki fram á kortinu. Til viðauka liggur fyrir að hluti samþykktra nýbyggingarverkefna með stofnframlögum hefur ekki orðið að veruleika. Þar geta ýmsar ástæður legið að baki, meðal annars breytingar á forsendum, kostnaði eða framvindu einstakra verkefna.
Dreifing almennra íbúða í notkun eftir staðsetningu.
Fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar eflir almenna íbúðakerfið
Í lok október 2025 var fyrsti húsnæðispakki ríkistjórnarinnar kynntur. Meðal aðgerða í pakkanum er hækkun stofnframlags úr 30 prósentum í 35 prósent. Jafnframt hækkar sérstakt viðbótarframlag ríkisins vegna íbúða fyrir námsmenn, öryrkja og félagslegra íbúða á vegum sveitarfélaga úr 4 prósentum í 5 prósent. Með breytingunum hækkar framlag ríkisins úr 18 prósentum í 23 prósent, en framlag sveitarfélaga verður áfram 12 prósent.
Markmið breytinganna er að styrkja almenna íbúðakerfið. Uppbygging almennra íbúða hefur ekki gengið eftir áætlunum, meðal annars vegna þess að erfitt hefur reynst að láta verkefnin ganga upp í háu vaxtaumhverfi. Þar vegur einnig þungt að leiga í almennum íbúðum á að jafnaði ekki að vera hærri en fjórðungur af tekjum leigjenda. Breytingunum er því ætlað að bæta forsendur verkefnanna og styðja við frekari uppbyggingu.
Á þessu ári verða 7,5 milljarðar króna til úthlutunar, samanborið við 7,3 milljarða á síðasta ári. HMS er nú að fara yfir umsóknir sem bárust í fyrri úthlutun ársins. Þar bárust umsóknir um kaup eða byggingu 365 íbúða í 13 sveitarfélögum um land allt. Þegar hafa fimm umsóknir, sem taka til 22 íbúða, verið samþykktar af HMS og viðkomandi sveitarfélögum.
Um stofnframlög
Stofnframlög eru stuðningur í formi eigin fjár sem veitt eru til uppbyggingar á leiguíbúðum fyrir tekju- og eignaminni heimili til að auka húsnæðisöryggi leigjenda og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda eða að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. Stofnframlögin sem eru veitt bæði til byggingar og kaupa á íbúðum eru veitt annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í.
Stofnframlag ríkisins er 18% af stofnkostnaði íbúðanna og framlag sveitarfélags er 12%. Ríki er heimilt að veita allt að 4% viðbótarframlag vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, íbúðarhúsnæðis ætlað námsmönnum eða fötluðu fólki. Einnig er heimilt að veita sérstakt byggðaframlag vegna byggingar almennra íbúða á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





