21. júlí 2026

Rb-blað júlímánaðar: Þrep í görðum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Rb-blað mánaðarins snýr að hönnun og framkvæmd þrepa og gönguleiða í görðum
  • Tröppur og þrep gegna lykilhlutverki í að skapa góða og öruggar gönguleiðir
  • Fjallað er um efnisval, stærðir og hlutföll fyrir þrep utandyra í Rb-blaðinu

Í rúma hálfa öld hafa Rb-tækniblöðin miðlað þekkingu og leiðbeiningum um mannvirkjagerð og byggingartækni. Samhliða vinnu HMS við gerð nýrra Rb-tækniblaða er einnig tilefni til að rifja upp eldri blöð sem enn hafa mikið notagildi og eiga erindi við viðfangsefni samtímans.

Að þessu sinni er vakin athygli á Rb-blaðinu Þrep í görðum, nr. RB(38).003. sem gefið var út árið 1997. Hægt er að lesa blaðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Þrep í görðum

Yfir sumarmánuðina beinist athygli margra að framkvæmdum utanhúss og þar eru lóðir bygginga engin undantekning. Góðar og öruggar gönguleiðir eru mikilvægar í nærumhverfi okkar og þar gegna tröppur og þrep lykilhlutverki. Þau þurfa að vera örugg og þægileg í notkun svo draga megi úr fallhættu og auðvelda umferð um mishæðótt landslag.

Á enn er­indi þrátt fyr­ir ald­ur

Í Rb-blaði mánaðarins er fjallað um hönnun og framkvæmd þrepa og gönguleiða í görðum, með áherslu á öryggi, notagildi og endingargott efnisval. Þrátt fyrir aldur sinn eiga leiðbeiningarnar enn fullt erindi við þá sem hanna, lagfæra útisvæði og nýtast einnig almennum húseigendum í vinnu sinni í garðinum.

Í blaðinu er farið yfir val á efnum, meðal annars náttúrusteini, steinsteypu og timbri, auk þess sem fjallað er um stærðir og hlutföll sem stuðla að þægilegri og öruggri umferð. Einnig eru sýnd dæmi um framkvæmd þrepa, þar á meðal undirstöður, frostvarnir og mismunandi útfærslur með hellum, steypu og timbri.

Markmiðið er að stuðla að öruggum, endingargóðum og vel útfærðum lausnum sem falla vel að umhverfinu og standast þær kröfur sem íslenskar aðstæður gera til mannvirkja utanhúss.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS