12. október 2026
12. október 2026
Ný rafmagnsöryggisgátt HMS tekin í notkun
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS tekur nýja rafmagnsöryggisgátt í fulla notkun 12. október
- Nýja gáttin einfaldar ferla, eykur sjálfvirkni og bætir rekjanleika upplýsinga
- Frá 12. október verða allar nýjar þjónustubeiðnir og lokatilkynningar skráðar á rok.hms.is
Mánudaginn 12. október tekur HMS nýja rafmagnsöryggisgátt í fulla notkun. Um er að ræða stórt skref í stafrænni þjónustu á sviði rafmagnsöryggis og markar dagurinn ákveðin kaflaskil í rafmagnsöryggismálum hér á landi.
Rafmagnsöryggisgátt hefur um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í samskiptum HMS, löggiltra rafverktaka, dreifiveitna og skoðunarstofa. Gáttin var á sínum tíma sett upp sem miðlægt upplýsingakerfi með það að markmiði að auðvelda rafræn skil upplýsinga og samskipti þeirra aðila sem koma að rafmagnsöryggismálum.
Gamla gáttin hefur þjónað þessum tilgangi vel en er komin til ára sinna. Með tímanum hafa óskir notenda um endurbætur og nýja virkni jafnframt aukist. Því þótti tímabært að taka næsta skref og byggja upp nýja lausn frá grunni sem tekur betur mið af nútímakröfum um stafræna þjónustu.
Langur undirbúningur að baki
Undirbúningur nýrrar rafmagnsöryggisgáttar hefur staðið síðan 2024 en þá settu SI og Samorka sig í samband við HMS og vöktu athygli á nauðsyn þess að uppfærslu væri þörf. HMS tók vel í málið og hóf þarfagreiningu og hönnun nýrrar lausnar í samráði við hagaðila áður en eiginleg þróunarvinna hófst og hefur verkefnið verið unnið í áföngum síðan.
Markmiðið með nýja kerfinu er meðal annars að einfalda ferla, bæta rekjanleika upplýsinga, auka sjálfvirkni og bæta upplifun þeirra sem nota kerfið. Gáttin heldur utan um ferli mála á einum stað, meðal annars skráningu þjónustubeiðna og lokatilkynninga, afgreiðslu dreifiveitna og HMS og skráningu og framkvæmd skoðana ásamt rekjanlegum samskiptum þeirra sem að þeim koma.
Með gangsetningu hennar í dag hefst því nýr kafli í rafrænu utanumhaldi og samskiptum á sviði rafmagnsöryggis hér á landi.
Rafverktakar hafa tekið þátt í prófunum
Þann 15. júní 2026 hófst prófunarferli þegar SART í samstarfi við HMS sendi út tölvupóst til allra sinna félagsmanna og óskaði eftir þátttöku þeirra í prófunum á kerfinu. Þann 6. október 2026 fengu svo allir löggiltir rafverktakar á skrá HMS tölvupóst þar sem þeim var tilkynnt opnun nýju gáttarinna til prófunar. Markmiðið var að fá sem flesta til að prófa kerfið og koma á framfæri ábendingum áður en það færi í fulla notkun svo unnt væri að gera síðustu lagfæringar.
Fimmtudaginn 8. október hélt HMS jafnframt kynningar- og kennslufund fyrir rafverktaka í húsakynnum Rafmennt þar sem farið var yfir vinnuferli og virkni nýju gáttarinnar. Fundinum var streymt og hann tekinn upp svo hægt er að nálgast kynninguna hér.
Ný mál fara í nýju gáttina frá 12. október
Frá og með 12. október 2026 verður ekki lengur hægt að skrá nýjar lokatilkynningar eða þjónustubeiðnir í eldri rafmagnsöryggisgátt HMS. Ný mál verða þess í stað skráð í nýju gáttina.
Mál sem þegar hefur verið skilað inn í eldri gáttina verða áfram afgreidd þar uns vinnslu þeirra er lokið.
Nýja rafmagnsöryggiskerfið er aðgengilegt á rok.hms.is.
Aðstoð og kennsla fyrir rafverktaka
HMS hvetur rafverktaka til að kynna sér nýju gáttina og koma ábendingum um það sem betur má fara á framfæri við stofnunina. Ábendingar og fyrirspurnir vegna gáttarinnar má senda á rafmagn@hms.is.
HMS býður jafnframt upp á fjarfundi á Teams þar sem farið verður yfir notkun gáttarinnar og gefinn tími fyrir spurningar. Fundirnir verða kl. 12:00 til 13:00:
- 12. október
- 16. október
- 23. október
- 30. október
Skráning fer fram með tölvupósti á rafmagn@hms.is og skal taka fram á hvaða fund aðilar vilja sækja.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




