Nordic Climate Forum for Construction 2026 haldið í Reykjavík
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Nordic Climate Forum for Construction 2026 var haldið í Reykjavík af HMS í samstarfi við Nordic Sustainable Construction
- Fjallað var um lífsferilsgreiningu bygginga (LCA), stafrænar lausnir fyrir byggingargeirann og aðlögun byggðs umhverfis að loftslagsbreytingum
- Ráðstefnan styður við framkvæmd aðgerða 5.1.15, 5.3.7 og 5.3.9 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð
Norðurlöndin og Eistland saman í Reykjavík
Áttunda Nordic Climate Forum for Construction (NCFC) var haldið í Norræna húsinu í Reykjavík þann 30. september 2026. Fulltrúar byggingaryfirvalda og sérfræðingar frá Norðurlöndum og Eistlandi komu þar saman til að ræða helstu áskoranir og tækifæri tengd lífsferilsgreiningum, stafvæðingu og loftslagsaðlögun í byggingargeiranum. Ráðstefnan var haldin af HMS í samstarfi við Nordic Sustainable Construction. 70 þátttakendur sóttu ráðstefnuna og um 400 manns fylgdust með í streymi.
Ný þróun í regluverki, stafvæðingu og loftslagsaðlögun
Á dagskrá voru erindi frá fulltrúum Evrópusambandsins, norrænum og eistneskum stjórnvöldum auk fulltrúa atvinnulífs og rannsókna. Fjallað var um nýjustu þróun í lífsferilsgreiningum (LCA), stafrænum lausnum fyrir byggingargeirann og aðlögun byggðs umhverfis að loftslagsbreytingum. Meðal umfjöllunarefna voru ný Byggingarvörureglugerð Evrópusambandsins (CPR), stafrænir vörupassar (Digital Product Passport), stafrænar mannvirkjaskrár og aðferðir til að meta og kortleggja loftslagstengda áhættu.
Í erindum dagsins kom fram að aukin stafvæðing og samræmd gögn muni gegna lykilhlutverki í innleiðingu hámarksgilda á losun bygginga á næstu árum. Jafnframt var lögð áhersla á mikilvægi þess að taka mið af breyttum loftslagsaðstæðum við skipulag, hönnun og rekstur mannvirkja.
Eftir hádegi tóku þátttakendur á staðnum þátt í vinnustofum þar sem unnið var áfram með helstu viðfangsefni dagsins og rætt um sameiginlegar áskoranir og tækifæri á Norðurlöndum.
Tenging við Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð
Ráðstefnan styður við framkvæmd fjölmargra aðgerða í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð. Þar má nefna aðgerð 5.1.15 um nýtingu stafrænna lausna til að auka sjálfbærni í byggingariðnaði, en stór hluti dagskrárinnar snerist um stafræna lífsferilsgreiningu, stafræna vörupassa og aðra stafræna innviði sem geta stutt við gagnadrifna ákvarðanatöku og samræmda upplýsingagjöf í mannvirkjagerð.
Ráðstefnan tengdist jafnframt aðgerðum 5.3.7 og 5.3.9 sem snúa annars vegar að líffræðilegum fjölbreytileika í hinu byggða umhverfi og hins vegar að aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum, en þau málefni eru nátengd. Umræður um loftslagstengda áhættu, seiglu mannvirkja og hönnun fyrir breytt loftslag falla vel að markmiðum þeirra aðgerða og undirstrika mikilvægi þess að horfa til langtímaáhrifa loftslagsbreytinga við skipulag og þróun mannvirkja.
Áframhaldandi norrænt samstarf
Nordic Climate Forum for Construction er árlegur vettvangur fyrir miðlun þekkingar og samstarf milli Norðurlandanna um að draga úr loftslagsáhrifum mannvirkjagerðar og styðja við græn og stafræn umskipti í byggingargeiranum.
Nánari umfjöllun um ráðstefnuna og erindin má finna á vef Nordic Sustainable Construction.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS










