6. mars 2026

Mikil eftirspurn eftir stofnframlögum fyrir almennar leiguíbúðir í fyrstu úthlutun ársins

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Óhagnaðardrifin leigufélög sóttu um stofnframlög fyrir 354 íbúðir í fyrstu úthlutun ársins
  • Stofnframlögin eru nýtt til uppbyggingar og kaupa á almennum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað
  • Ráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um hækkun stofnframlaga ríkisins á Alþingi

Umsóknarfrestur fyrir stofnframlög í fyrstu úthlutun ársins er nú liðinn, en HMS opnaði fyrir umsóknir þann 5. febrúar síðastliðinn. Sótt var um stofnframlög fyrir samtals 4,4 milljarða króna fyrir 354 íbúðir sem yrðu staðsettar í 13 sveitarfélögum í öllum landshlutum.

Stofnframlög eru veitt af ríki og sveitarfélögum til óhagnaðardrifinna leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili. Alls eru 7,5 milljarðar króna til úthlutunar af hálfu ríkisins í stofnframlög á árinu.

Á mynd hér að neðan má sjá staðsetningu íbúða sem sótt er um stofnframlög fyrir í fyrstu úthlutun 2026. Líkt og myndin sýnir eru 326 íbúðir staðsettar á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi eystra.

Stað­setn­ing íbúða sem sótt er um stofn­fram­lög fyr­ir
í fyrstu út­hlut­un 2026

Staðsetning íbúða sem sótt er um stofnframlög fyrir í fyrstu úthlutun 2026.

Ráð­herra vill hækka stofn­fram­lög rík­is­ins

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi um hækkun á stofnframlögum ríkisins. Lesa má nánar um frumvarpið í frétt á vef stjórnarráðsins, en það felur í sér að stofnframlag ríkisins verði hækkað úr 18% af stofnkostnaði húsnæðis í 23%.

Frumvarpið er liður í aðgerðum sem ríkisstjórnin kynnti í fyrsta húsnæðispakkanum sínum á haustmánuðum 2025. HMS hefur áður gert grein fyrir innihaldi húsnæðispakkans og áætluðum áhrifum hans á húsnæðismarkaði. Betri nýting stofnframlaga getur unnið gegn verðhækkunum á leigumarkaði til langs tíma með því að stuðla að auknu framboði leiguhúsnæðis á viðráðanlegu verði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS