21. apríl 2026

Þétting byggðar mætir mestri andstöðu meðal eldra fólks í úthverfum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Öryggi, gott samfélag og vinaleg samskipti skiptir fólk á öllum aldri miklu máli við val á nærumhverfi
  • Andstaða við þéttingu eykst með aldri og er meiri í úthverfum höfuðborgarsvæðisins en í þéttari hverfum
  • Búsetuóskir heimila eru fjölbreyttari en sú íbúðauppbygging sem nú er mest áberandi á höfuðborgarsvæðinu

Viðhorf til húsnæðis og nærumhverfis ráðast að hluta af æviskeiði fólks, þar sem eldra fólk leggur áherslu á að komast sínar ferðir á einkabíl á meðan yngra fólk vill vera nálægt vinnu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun HMS um skipulagsóskir, en niðurstöður úr henni verða birtar og kynntar á húsnæðisdeginum sem fer fram á morgun, 22. apríl.

Hægt er að fylgjast með húsnæðisdeginum í beinu streymi með því að smella á hnappinn hér að neðan á meðan á viðburðinum stendur.

Húsnæðisdagurinn 2026

Afstaða til þéttingar ólík eftir aldri og búsetu

Yngra fólk, einkum á barneignaaldri, leggur meiri áherslu á nálægð við skóla, leikskóla, vinnu og þjónustu. Eldri svarendur horfa hins vegar frekar til gæða nærumhverfis, góðs aðgengis, loftgæða og nálægðar við náttúru.

Könnunin sýnir jafnframt skýran mun á afstöðu fólks til þéttingar byggðar. Andstaða við þéttingu eykst með hækkandi aldri og er meiri í úthverfum Reykjavíkur og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma reynast yngri svarendur og íbúar í þéttari og grónari hverfum almennt jákvæðari gagnvart frekari þéttingu.

Er uppbygging í takt við búsetuóskir landsmanna?

Niðurstöðurnar benda einnig til þess að búsetuóskir á höfuðborgarsvæðinu séu fjölbreyttar. Yngstu svarendur sjá frekar fyrir sér að búa í fjölbýli, sérbýli vegur þyngra hjá fólki á miðjum aldri en meðal elstu svarenda eykst vægi fjölbýlis aftur. Þegar nánar er litið á valkosti innan fjölbýlis kemur fram að margir horfa til smærri og meðalstórra fjölbýla, ekki eingöngu þeirra stærstu.

Þetta er áhugavert í ljósi marstalningar HMS á íbúðum í byggingu, sem sýnir að meirihluti íbúða á höfuðborgarsvæðinu er nú í stórum fjölbýlishúsum. Samanburðurinn gefur því tilefni til að huga að því hvort samsetning nýrrar uppbyggingar endurspegli nægilega vel fjölbreyttar búsetuóskir heimila.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS