17. júlí 2026

Hlutfall einstaklinga á leigumarkaði hækkar lítillega

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Um 29% fullorðinna eru á leigumarkaði í ár
  • Hlutfallið hækkaði lítillega frá því síðasta haust
  • Vísbendingar eru um að ungt fólk hafi flutt úr foreldrahúsum og farið á leigumarkað

Gera má ráð fyrir að um 29% fullorðinna einstaklinga séu á leigumarkaði hér á landi miðað við 28% í fyrra, á meðan hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum hefur lækkað á milli ára. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri búsetukönnun HMS og fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir júlímánuð sem gefin verður út í næstu viku.

Litlu fleiri á leigu­mark­aði í ár en í fyrra

Niðurstaða búsetukönnunar HMS byggir á samanteknum upplýsingum úr búsetumælingum meðal könnunarhóps Prósents og sérstakri búsetumælingu meðal aðfluttra félagsmanna Eflingar, VR og Einingar-Iðju. Gögnum var safnað frá febrúar fram í maí 2026. Á mynd hér að neðan má sjá hvernig stærð leigumarkaðar hefur þróast undanfarin ár á ólíka mælikvarða.

Líkt og myndin sýnir hækkaði hlutfall einstaklinga á leigumarkaði um eitt prósentustig á milli kannana og mælist það nú 29%. Til samanburðar var hlutfall einstaklinga á leigumarkaði á milli 13% og 23% í svörum úr lífskjararannsókn Hagstofu frá árunum 2004-2016.

Hlutfallslega fleiri eru á leigumarkaði í Reykjavík samanborið við hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðina. Um 37% fullorðinna búa í leiguhúsnæði í Reykjavíkurborg á meðan hlutfallið er 26% í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og 21% á landsbyggðinni. Að sama skapi búa hlutfallslega fleiri í eigin húsnæði utan Reykjavíkur, eða um 73% á landsbyggðinni og 61% í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur samanborið við 52% í Reykjavík.

Ungt fólk úr for­eldra­hús­um á leigu­mark­að

Vísbendingar eru um að ungt fólk hafi í nokkrum mæli flutt úr foreldrahúsum og farið inn á leigumarkað á milli kannana. Þar munar mestu um breytingar í búsetu innfæddra Íslendinga, en minni breytingar hafa orðið á búsetudreifingu aðfluttra á milli ára.

Samkvæmt niðurstöðum úr nýrri búsetumælingu HMS búa nú um 37% einstaklinga á aldrinum 18-24 ára í foreldrahúsum samanborið við um 47% í fyrra. Á sama tíma hefur hlutfall einstaklinga á leigumarkaði hækkað úr 34% í 45%, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan. Einungis lítill minnihluti einstaklinga á þessum aldri býr í eigin húsnæði, eða um 10%.

Litlar breytingar urðu á búsetudreifingu aðfluttra ungmenna á milli ára þar sem hlutfall einstaklinga á leigumarkaði hækkaði úr 71% í 73% og hlutfall einstaklinga í foreldrahúsum lækkaði úr 16% í 14%. Hlutfall einstaklinga í eigin húsnæði hélst stöðugt í 4%. Talsvert meiri breytingar urðu hins vegar á búsetudreifingu innfæddra ungmenna þar sem hlutfall einstaklinga á leigumarkaði hækkaði úr 23% í 32% á milli ára á sama tíma og hlutfall einstaklinga sem búa í foreldrahúsum lækkaði úr 58% í 48%. Hlutfall einstaklinga sem býr í eigin húsnæði lækkaði lítillega úr 13% í 12%.

Nánar verður fjallað um hlutfall ungs fólks sem býr í foreldrahúsum hér á landi og það sett í alþjóðlegt samhengi í nýrri mánaðarskýrslu sem kemur út í næstu viku.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS