4. júní 2026
4. júní 2026
Fasteignaskrá lokuð vegna kerfisuppfærslu 5-7 júní
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Fasteignaskrá HMS verður óaðgengileg frá kl. 17 á föstudag til kl. 13 á sunnudag vegna uppfærslu á gagnagrunnum
- Ýmis kerfi og þjónustur verða einnig óaðgengilegar á meðan á uppfærslu stendur
- Truflanir verða á vefþjónustum fasteignaskrár og kerfum sem nýta gögn úr henni auk þess sem sumar upplýsingar verða óaðgengilegar á Ísland.is
Uppfærsla á gagnagrunnum fasteignaskrár fer fram helgina 5.– 7. júní. Á meðan á uppfærslu stendur verður grunnurinn óaðgengilegur sem mun hafa áhrif á ýmis kerfi og þjónustur.
Gert er ráð fyrir að vinna við uppfærsluna hefjist um kl. 17:00 á föstudaginn og verði lokið um kl. 13:00 á sunnudaginn.
Meðal þeirra kerfa sem verða óaðgengileg eru
- Allar rafrænar þinglýsingar
- Fasteignaskrá
- Ökutækjaskrá
- Leiguskrá
- Skráningarkerfi byggingarfulltrúa (Bygging)
- Vefuppfletti
- Tryggingabanki
- Verðsjá fasteigna
- Upplýsingar um leigusamninga og húsnæðisbætur á Mínum síðum HMS
- Álagningarseðlar
- Fasteignatilkynningar
Auk þess verður ekki hægt að nálgast upplýsingar um fasteignir, þinglýst skjöl og vottorð frá sýslumanni á mínum síðum á Ísland.is
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




