20. júlí 2026

Fasteignamatsskýrsla fyrir árið 2027 er komin út

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Hægt er að nálgast helstu niðurstöður og reikniaðferðir nýs fasteignamats í nýútgefinni fasteignamatsskýrslu
  • HMS reiknar árlega fasteignamat fyrir allar fasteignir á Íslandi
  • Fasteignamat endurspeglar áætlað markaðsvirði fasteigna

HMS birti nýtt fasteignamat fyrir árið 2027 þann 2. júní síðastliðinn. Fjallað var um helstu niðurstöður matsins í frétt á vef HMS auk þess em matið var kynnt á opnum fundi í húsakynnum HMS, en upptöku af fundnum má nálgast með því að smella hér.

Fasteignamatsskýrsla fyrir árið 2027 er nú komin út. Skýrslan inniheldur útskýringar á öllum reikniaðferðum fyrir fasteignamat 2027. Aðferðirnar skiptast niður í íbúðamat, atvinnumat, sumarhúsamat, markaðsleiðrétt kostnaðarmat og verðflokkamat. Hægt er að nálgast skýrsluna með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Fasteignamatsskýrsla 2027

Í skýrslunni er meðal annars fjallað um svokölluð matssvæði. Matssvæðum er ætlað að endurspegla staðsetningu sem er ein mikilvægasta breytan þegar kemur að virði fasteigna. Undirmatssvæðum er enn frekar ætlað að ná utan um sértæk staðsetningaráhrif, svosem nálægð við sjó eða umferðarþungar götur. Á myndinni hér að neðan má sjá dæmi um matssvæði og undirmatssvæði í neðri byggðum Reykjavíkur. Lituð svæði tákna matssvæði en hvít svæði tákna undirmatssvæði.

Matssvæði og undirmatssvæði

HMS birtir fasteignamat næsta árs í lok maí eða byrjun júní ár hvert, miðað við áætlað markaðsvirði í síðastliðnum febrúar. Fasteignamat 2027 miðast því við verðlag fasteigna í febrúar 2026 og tekur gildi 31. desember 2026.

Fasteignamat skal vera eins góð nálgun á markaðsvirði og fýsilegt er hverju sinni, þó þannig að það sé sanngjarnt og hóflegt. Til þess eru útbúnar reikniaðferðir sem reikna út líklegt markaðsvirði fasteigna en útskýring á aðferðunum má finna í þessari skýrslu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS