1. júní 2026
2. júní 2026
Fasteignamat 2027 hækkar um 2,1 prósent á milli ára
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Fasteignamat á Íslandi lækkar að raunvirði á milli ára
- Minni verðþrýstingur á fasteignamarkaði veldur því að fasteignamatið hækkar töluvert minna en það hefur gert á síðustu árum
- Hægt er að skoða fasteignamat sérhverrar fasteignar á heimasíðu HMS
HMS hefur nú birt nýtt fasteignamat fyrir árið 2027, en stofnunin reiknar það árlega og birtir um mitt ár. Hægt er að fletta upp fasteignamati einstakra fasteigna með því að smella á hnappinn hér að neðan, en tölfræði að baki fasteignamatinu má finna í gögnum og mælaborðum fasteignaskrár hjá HMS.
Leitarvél fyrir fasteignamat einstakra fasteigna
Heildarmat fasteigna fyrir árið 2027 nemur 17,8 billjónum króna og hækkar um 2,1 prósent á milli ára. Fasteignamat íbúðareigna hækkar um 1,2 prósent á milli ára, en fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8 prósent. Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 4,7 prósent á milli ára.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis lækkar um 3,8 prósent að raunvirði
Fasteignamat íbúða lækkar að raunvirði á milli ára, þar sem það hækkar minna en almennt verðlag. HMS hefur áður fjallað um kólnun á fasteignamarkaði á síðustu misserum, en samhliða henni hefur fasteignaverð ekki haldið í við verðbólgu.
Á mynd hér að neðan má sjá hvernig fasteignamat íbúða hefur breyst samanborið við vísitölu íbúðaverðs. Líkt og myndin sýnir fylgja breytingar fasteignamats breytingum vísitölu íbúðaverðs eins og við er að búast.
Ef litið er til breytinga fasteignamats íbúðareigna eftir landshlutum er mest hækkun á Vestfjörðum, þar sem hún nemur 4,6 prósentum á milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu nemur hækkunin 1,0 prósenti á milli ára. Þar er hækkunin drifin áfram af sérbýlum, en fasteignamat fjölbýla á höfuðborgarsvæðinu stendur nánast í stað á milli ára.
Fasteignamat atvinnueigna hefur sveiflast minna en fasteignamat íbúðareigna
Fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8 prósent á milli ára. Hækkunin er nokkuð meiri en hjá íbúðareignum, en þó minni en almennt verðlag á sama tíma. Á mynd hér að neðan má sjá hvernig fasteignamat atvinnueigna hefur hækkað samanborið við fasteignamat íbúðareigna, en líkt og sést hefur hækkunin hjá atvinnueignum verið stöðugri á síðustu sex árum.
Fasteignamat á iðnaðarhúsnæði hækkar mest, en hækkunin þar nemur 5,5 prósentum á milli ára. Hækkunin hjá öðrum flokkum atvinnueigna á milli ára er nær 4 prósentum.
HMS greindi frá því á síðasta ári að matsaðferðir fyrir atvinnueignir séu til endurskoðunar. HMS hefur þróað drög að nýjum matsaðferðum í samráði við hagaðila og stefnir á að kynna þau síðar á þessu ári.
Eftirspurn eftir sumarhúsum heldur uppi fasteignamati
Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 4,7 prósent á milli ára og hækkar því með álíka hætti og fasteignamat atvinnueigna. Bæði sumarhús og atvinnueignir eru nær því að halda í við verðbólgu heldur en fasteignamat íbúðarhúsnæðis.
Fasteignamat sumarhúsa hefur hækkað töluvert á síðustu árum, vegna mikillar verðhækkunar á seldum sumarhúsum. Gera má ráð fyrir því að verðhækkunin sé vegna mikillar eftirspurnaraukningar miðað við framboð. Líkt og sjá má á mynd hér að neðan hefur fasteignamatið hækkað samhliða því að færri sumarhús eru til fyrir hvern íbúa.
Hægt er að nálgast tölfræði um fjölda íbúða og sumarhúsa frá árinu 2005 undir gögnum og mælaborðum á heimasíðu HMS.
Fasteignamat í Grindavík verður kynnt síðar í júní
Vegna óvissu um framtíðarhorfur og nýtingu eigna í Grindavík liggur fyrir ákvörðun ríkisstjórnar um að leggja fyrir Alþingi frumvarp um að halda fasteignamati í Grindavík óbreyttu á milli ára. Þegar niðurstaða þingsins liggur fyrir mun HMS birta nýtt mat á fasteignum í sveitarfélaginu.
Hvað er fasteignamat?
Fasteignamat er metið markaðsvirði fasteigna. HMS reiknar fasteignamat fyrir sérhverja fasteign á Íslandi á hverju ári, samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna.
Fasteignamat hvers árs miðar við áætlað markaðsvirði í febrúar árið áður. Þannig á fasteignamat 2027 að endurspegla markaðsvirði fasteignar í febrúar á árinu 2026, samkvæmt matsaðferðum HMS.
Frekari upplýsingar um útreikning fasteignamats má finna í fasteignamatsskýrslum HMS. Hægt er að nálgast fasteignamatsskýrslur síðustu ára með því að smella hér. Fasteignamatsskýrsla fyrir árið 2027 er væntanleg í haust.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



