Áætlanir háðar umhverfismati
Áætlanir háðar umhverfismati
Samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana eru tilteknar áætlanir háðar umhverfismati. Það gildir um:
- Skipulagsáætlanir sveitarfélaga, svæðis-, aðal- og deiliskipulag sem marka stefnu fyrir leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í 1. viðauka laganna.
- Strandsvæðisskipulag sem markar stefnu fyrir leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í 1. viðauka laganna.
- Aðrar áætlanir sem eru unnar á vegum stjórnvalda og marka stefnu um framkvæmdir sem falla undir lögin, svo sem kerfisáætlun, rammaáætlun og samgönguáætlun.
Ákvæði um umhverfismat áætlana er bæði að finna í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana og í 12. gr. skipulagslaga.