2023
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2023
Cubit Building Company
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Cubit Building Company
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Aðalsteinn Snorrason, Gautur Þorsteinsson
Cubit Building Company
Cubit Building Company
Lokaskýrsla fyrir Ask - mannvirkjarannsóknasjóð
Cubit Building Company
Vefsíðan cubithouse.com
Cubit Building Company
Fyrra verkefni styrkt af Aski - mannvirkjarannsóknasjóði (2022)
Cubit Building Company
Grunnhugmyndin að baki verkefninu var húsbyggingaraðferð sem byggðist á stöðluðum rýmiseiningum, Grunnhugmyndin að baki verkefninu var húsbyggingaraðferð sem byggðist á stöðluðum rýmiseiningum sem raða mátti saman að vild. Lengd byggingareininganna var alltaf margfeldi af breidd þeirra og því voru ekki takmarkanir á því hvernig einingum var raðað saman. Hliðstæðan við Lego-kubba var augljós. Þeir eru yfirleitt með tvo takka á skammhlið en á langhliðinni voru tveir, fjórir eða jafnvel sex eða fleiri takkar. Sama hvernig kubbi var snúið, passaði hann alltaf við hliðina á eða ofan á aðra kubba. Áskorunin var að færa þennan eiginleika inn í byggingariðnaðinn og fullvinna útfærslur sem gerðu mögulegt að nýta hann á raunhæfan hátt.
Með þessu vannst margt í byggingu íbúðarhúsnæðis. Framleiðsla byggingareininga gat farið fram á staðlaðan hátt í vernduðu innanhússumhverfi. Samsetning eininga á byggingarstað tók skamman tíma og viðbætur við húsnæði urðu auðveldari. Byggingareiningarnar voru úr stöðluðum grunneiningum sem voru fullbúin rými og mátti snúa og tengja saman á alla vegu, bæði lárétt og lóðrétt. Með þessum hætti var hægt að byggja hús með fjölbreyttu formi, bæði í grunnfleti og hæð.
Veigamikið atriði var að stærð byggingareininganna væri þannig að þær mætti flytja á þjóðvegum án þess að sérstök leyfi þyrfti. Samsetning eininga var síðan gerð á staðlaðan hátt á byggingarstað. Vegna staðlaðra festinga milli eininga urðu viðbætur við hús mögulegar og á sama hátt var unnt að losa húseiningar, eina eða fleiri, af undirstöðum og flytja á nýjan stað eða selja á eftirmarkaði til endurnýtingar.



