10. júlí 2026
13. júlí 2026
HMS fagnar einföldun á málsmeðferð skipulagsmála
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Áformaskjal um breytingu á skipulagslögum hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda
- Stefnt er að styttingu málsmeðferðartíma og einföldun ferla
- Breytingarnar eru í samræmi við áherslur sameiningar HMS og Skipulagsstofnunar
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur birt áformaskjal um breytingu á skipulagslögum á samráðsvef stjórnvalda. Athugasemdafrestur er gefinn til 21. ágúst 2026, en öllum gefst tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum.
Breytingin miðar að því að einfalda tiltekna þætti í málsmeðferð við undirbúning og samþykkt skipulags með það að markmiði að einfalda ferla þar sem það á við. Jafnframt er lagt upp með að skýra framkvæmd einstakra ákvæða og tryggja skilvirka meðferð mála án þess að dregið sé úr samráði, faglegum undirbúningi eða réttaröryggi.
Einnig er lagt til að endurskoða reglur um birtingu upplýsinga og auglýsinga í skipulagsmálum þannig að þær taki mið af nútímalegum leiðum til upplýsingamiðlunar og samráðs. Þá er stefnt að því að uppfæra og skýra tiltekin ákvæði laganna til að stuðla að skýrari verkaskiptingu, auknu samræmi í framkvæmd og skilvirkari stjórnsýslu. Breytingarnar styðja þannig við stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks og stjórnsýsluferla.
Með sameiningu HMS og Skipulagsstofnunar síðastliðið vor var stigið stórt skref með það að markmiði að efla stjórnsýslu skipulagsmála. Áform um breytingar á skipulagslögum, sem unnar voru í nánu samstarfi HMS og ráðuneytis, eru annað mikilvægt skref í þá átt. Á komandi vetri mun svo hefjast vinna við heildarendurskoðun laganna.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




