21. mars 2024

Húsnæðisbætur námu 8,5 milljörðum króna í fyrra

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi út 8,464 milljarða króna í húsnæðisbætur til 21.833 heimila vegna réttinda sem áunnust á síðasta ári. Heildarfjöldi íbúa í heimilum sem þáðu húsnæðisbætur var 38.247. 

Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur sem eru ætlaðar til að aðstoða tekju- og eignaminni einstaklinga og fjölskyldur sem leigja íbúðarhúsnæði, hvort sem er í félagslega kerfinu, námsgörðum eða á hinum almenna leigumarkaði. Húsnæðisbætur eru mikilvægt stjórntæki yfirvalda og er þeim ætlað að stuðla að auknu húsnæðisöryggi og auka aðgengi almennings að húsnæði við hæfi.  

HMS fer með framkvæmd húsnæðisbóta skv. lögum og teymi húsnæðisbóta á Sauðárkróki sér um afgreiðslu, útreikning og greiðslur húsnæðisbóta, ásamt annarri umsýslu sem verkefninu fylgir. 

Árið 2023 fór fram lokauppgjör ársins 2022 á greiðslu húsnæðisbóta. Inneignir voru 141 milljónir króna, en skuldir 319 milljónir króna.  

Alls var heildarupphæð réttinda húsnæðisbóta árið 2023 8,464 milljarðar króna vegna réttinda á árinu. HMS greiddi hins vegar út 8,541 milljarða króna á árinu, þar sem stofnunin hafði til hliðsjónar lokauppgjör húsnæðisbóta fyrir árið á undan og skuldajöfnun bóta. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS